Eftir að ég birti á blogginu myndir af Marius peysum sem ég prjónaði á Aþenu og Móra fékk ég mikil viðbrögð og óskum um uppskriftina.
Marius er höfundarréttarvarin svo ekki get ég orðið við óskum um uppskriftina en hún er eins og áður sagði frá árinu 1954 og því til í mörgum prjónablöðum. Ég setti aftur á móti saman .pdf skjal með nokkrum hugmyndum að útfærslu peysunnar.
Lesa bloggfærslu og bloggfærslu