Skilmálar
Almennt
Handverkskúnst áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Afhending vöru
Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti eða Dropp og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar viðkomandi aðila um afhendingu vörunnar. Handverkskúnst ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Handverkskúnst til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Afgreiddar pantanir eru póstlagðar kl. 16 virka daga.
Greiðsluform
Handverkskúnst býður upp á að greitt sé fyrir vörur með bankamillifærslu eða greiðslukorti. Hafi kaupanda verið gefið upp rangt verð, t.d. vegna mistaka við innslátt eða bilunar í vinnslukerfi, þegar hann staðfesti kaup á vöru verður honum þegar í stað tilkynnt um verðbreytingu og gefinn kostur á leiðréttingu eða að hætta við kaupin.
Skilafrestur
Kaupandi hefur 30 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með, inneignarnóta er gefin út fyrir skiluðu garni.
Ósóttar pantanir
Hafi vara ekki verið sótt innan við 6 mánuði eftir að hún er tilbúin til afhendingar fer hún aftur í sölu.
Netverð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.
Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða móttaka vöru á sér stað.