Stjarna barnapeysa
Peysan er prjónuð neðan frá og upp. Bolur og ermar sameinað á hringprjón, laskaúrtaka á berustykki
Stærðir: 2 (4) 6 (8) 10 (12) ára
- Yfirvídd: 64 (75) 79 (83) 90 (93) cm
- Ermalengd ca: 21 (24) 33 (37) 41 (44) cm
Garn: Drops Fiesta (50g = 110 m)
- Aðallitur (A): 5 (6) 6 (7) 8 (9) dokkur (litur á mynd nr 08)
- Mynsturlitur: 1 (1) 2 (2) 2 (2) dokkur (litur á mynd nr 01)
Einnig hægt að nota Drops Karisma, Drops Lima eða Drops Daisy
Prjónar: Sokkaprjónar og hringprjónn 40-60 cm nr 3½, 4 eða 4½.
Prjónfesta:
21L x 26 umf = 10×10 cm á prjóna nr 4 í sléttu prjóni –
20L x 24 umf = 10×10 cm á prjóna nr 4½ í sléttu prjóni.
Ég hef svo oft í gegnum árin verið beðin um uppskrift af þessari færeysku stjörnupeysu. Peysan hefur verið gífurlega vinsæl í Færeyjum og víðar. Peysan gegnur stundum undir nafninu ”Sara Lund peysan” og kom fram í dönsku þáttunum The Killing. Hér kemur mín útgáfa af þessari skemmtilegu barnapeysu.
Kaupa á Ravelry














