Púffaða sjalið

950 kr.

***Uppskriftin verður uppfærð með fleiri myndum eftir Garnival***

Garn: 3 dokkur Leonora by Permin og 2 dokkur af Hannah by Permin.
Allt sjalið er heklað með tvöföldum þræði, einum þræði af hvorri tegund.

Heklunál: 4 mm, eða sú stærð sem þarf til þess að ná réttri heklfestu.

Heklfesta: 16 púff stuðlar = 10 cm, fyrir þvott.

Heklfesta er ekkert það mikilvæg í þessu sjali, en önnur heklfesta getur haft þær afleiðingar að uppgefið garnmagn dugar ekki til. Uppskriftin er samt sem áður þannig að það er hægt að nota hvaða grófleika af garni sem er, en það breytir hins vegar líka garnmagninu.

Á lager

Vörunúmer: puffsjal Flokkar: , , Merkimiði: