Sokkaprjóna námskeið með Prjóneu – fiskikossahæll!
Lærðu að prjóna sokka!
Við prjónum saman hæl á námskeiðinu.
Förum yfir ýmsan sokkaprjónafróðleik og tækni.
Fiskikossahæll (e. Fish lips kiss heel) er hællinn sem er kenndur. Þessi hæll passar á alla stærðir sokka, alla grófleika á garni, lykkjufjöldra og hvort sem prjónaður er sokkur frá stroffi eða tá. Förum einnig saman yfir ýmislegt nytsamlegt þegar kemur að sokkaprjóni. Innifalið er Prjóneu sokkauppskrift með íslenskri þýðingu á þessum góða hæl. Hann er með fáa sauma og engar lykkjur sem þarf að taka upp sem gerir hann einstaklega góðan.
Í uppskriftinni og á námskeiðinu mælum við með að nota fingering sokkagarn eins og Tough sock frá Dóttir Dyeworks eða Drops Fabel og þarf að vera búið að prjóna að hæl þegar komið er á námskeiðið.
Prjónea – Magnea Arnardóttir er kennari á námskeiðinu. Hún er þroskaþjálfi og kennari sem prjónar alveg svakalega mikið af sokkum! Námskeiðið hentar byrjendum sem lengra komnum. Hún hefur kennt námskeið víða og nemendur hafa allir lært að prjóna hælinn góða! Nemendur á aldrinum 17-80 ára hafa komið á námskeið svo öll eru svo sannarlega velkomin.
Námskeiðið kostar: 14.000 kr.
Greiða þarf námskeiðsgjald við skráningu. Námskeið er ekki endurgreitt nema forföll séu tilkynnt með skilaboðum í síma 888-6611 með minnst 3ja tíma fyrirvara. Ef ekki næst lágmarksþátttaka og námskeið fellur niður er námskeiðisgjaldið endurgreitt að fullu.
**Athugið að mörg stéttarfélög styrkja félaga sína á námskeið**
















