Elías teppið er heklað með aðferð sem kallast stuðlahekl (e. Filet crochet). Grunnurinn að stuðlahekli er net heklað úr loftlykkjum og stuðlum. Þetta net lítur út eins og rúðustrikað blað. Til þess að fá út munstur eru þessar rúður ýmist auðar eða fylltar. Uppskriftin er í texta, táknum og töflu.
Garn: 7 dokkur af Esther by Permin (50g/230m), litur nr. 06, flaskegrøn.
Heklunál: 2,5 mm
Teppastærð: ca 84 cm á breidd og 110 cm á lengd fyrir þvott.











