Drops Merino Extra Fine Mix – ljóstaupe
Sérlega fín merino ull sem hefur verið meðhöndluð til að þola þvott í þvottavél.
DROPS Merino Extra Fine er spunnið úr ofur fínum merino ullar trefjum af frjálsum dýrum í Suður Ameríku. Flíkur gerðar úr þessu garni eru mjög þægilegar og hafa mjúkt yfirborð. Þetta garn er mjúkt viðkomu við húð og er því tilvalið í ungbarna- og barnaföt. Tilvalið í flíkur með áferð eins og kaðla, þetta garn er meðhöndlað til að þola þvott í þvottavél og því tilvalið í hversdags flíkur.
DROPS Merino Extra Fine er einlitt (uni) og í blönduðum litum (mix) – blandaðir litir þýða að mismunandi litir ullarinnar eru kembdir saman fyrir spuna, útkoman verður blönduð litasamsetning.
DROPS Merino Extra Fine er spunnið úr mörgum þunnum þráðum, sem gefur garninu góðan teygjanleika. Þessi uppbygging gerir það að verkum að nauðsynlegt er að meðhöndla garnið rétt. Mikilvægt er að passa vel uppá prjónfestuna/heklfestuna, prjónaðu/heklaðu frekar fast en laust. Ekki þvo flíkina í of heitu vatni og ekki láta hana liggja í bleyti. Látið flíkina liggja flata og þorna.
100% Ull
50 gr = um 105 metrar
Drops garnflokkur B – DK grófleiki
Prjónar & heklunál: nr 4
Prjónfesta: 21 lykkjur x 28 umferðir = 10 x 10 cm
Þvoið í þvottavél með vægri vindingu 40°C / Notið ekki mýkingarefni/ Leggið flíkina flata til þerris
» Finndu fríar uppskriftir fyrir Drops Merino Extra Fine á heimasíðu Garnstudio.
» Skoðaðu hvað aðrir hafa prjónað/heklað úr Drops Merino Extra Fine á Ravelry.
Merktu myndirnar þínar með myllumerkinu #dropsmerinoextrafine þegar þú deilir myndum af verkefnunum þínum á netinu!