Steinarr – hekluð peysa
Krúttleg peysa á smáfólkið. Klassískt snið með nýrri útfærslu.
Stærðir: 1-3 mán (6-9 mán) 12-18 mán
Stærðir í cm: 56-62 (68-74) 80-86 
Garn: Scheepjes Stone Washed
200 gr í allar stærðir ef notaðir eru 3 litir, 2 dokkur af aðallit, 1 dokka af hvorum aukalit.
Litir í peysu í uppskrift:
- Litur 1 – brúnn nr. 822,
 - Litur 2 – ljósblár nr. 813,
 - Litur 3 – jaðigrænn nr. 806.
 
Heklunál: 4 mm í peysu, 3,5 mm í stroff.
Heklfesta: 17 stuðlar og 8 umferðir = 10 x 10 sm, heklað fram og til baka með 4 mm nál
Greinagóðar skýringarmyndir eru í uppskriftinni og hentar hún því vel byrjendum.
Rafræn uppskrift berst í tölvupósti eftir að pöntun er afgreidd.



				




				
				
				
				
				
				
				