Hekluð/þæfð sessa úr tvöföldum þræði af Drops Eskimo.
DROPS Design: Mynstur ee-526
Stærð: Fyrir þæfingu ca. 51 cm að þvermáli. Eftir þæfingu ca. 40 cm að þvermáli.
Garn: Drops Eskimo
- 150 gr litur nr 01, natur
- 100 gr litur nr 30, pastelbleikur
- 100 gr litur nr 24, gulur
- 50 gr litur nr 26, bleikur
- 50 gr litur nr 37, safír
Heklfesta: 8 stuðlar/fastalykkjur verða 10 cm.
Heklunál: nr. 8
Uppskrift má nálgast frítt hérna og garnið kaupir þú hérna: Drops Eskimo eða heimsækir okkur í verslunina.