Krókur – barnapeysa og buxur
Peysan og buxurnar eru prjónaðar ofan frá og niður. Mynstur við laskalínu og meðfram síðu á peysu. Mynstur á hliðum buxna.
Peysa: 2 (3) 4 (6) 8 (10) 12 ára
Yfirvídd: 63 (65) 67 (70) 73 (78) 82 cm
Ermalengd ca: 26,5 (27,5) 32 (37) 40,5 (43,5) 45,5 cm með stroffi
Garn: Drops Soft Tweed (50g = 130m)
- 200 (200) 200 (250) 250 (300) 350 gr, litur á mynd nr 11
Prjónar: Hringprjón 40 og 60-80 cm nr 3,5 og 4. Sokkaprjónar eða 23-30 cm hringprjónn nr 3,5 og 4.
Prjónfesta: 21L = 10 cm á prjóna nr 4 í sléttu prjóni
Buxur: 2 (3-4) 6 (8) 10 ára
- Ummál mjaðma u.þ.b.: 55 (58) 62 (70) 78 cm
- Skálmalengd u.þ.b.: 32 (39) 45 (50) 58 cm
Garn: Drops Soft Tweed (50g = 130m)
- 150 (150) 200 (250) 250 g litur á mynd nr 07
Prjónar: Hringprjónn 40-60 cm, nr 3 og 4. Sokkaprjónar nr 3
Prjónfesta: 21 lykkja = 10 cm í sléttu prjóni á prjóna nr 4
Rafræn uppskrift berst eftir að kaup hafa verið staðfest.
Kaupa uppskrift á Ravelry