Júní ungbarnateppi
Fallegt teppi sem er viðbót við Júní línuna. Snúrukantur (e. I-Cord kantur) er prjónaður allan hringinn samhliða perluprjóni og mynstri. Auðvelt er að stækka eða minnka teppið með því að bæta við/fækka mynstureiningum
Stærð: ca 70×90 cm
Garn: Drops Baby Merino
- 300 gr (litur á mynd nr 48)
Prjónar: Hringprjónn 80 cm, nr 3,5
Prjónfesta: 23-24 lykkjur = 10 cm í perluprjóni eftir þvott
Annað: 2 prjónamerki