Prjónuð peysa úr DROPS Karisma eða DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri.
Drops Design: Mynstur u-885 (Garnflokkur B)
Stærðir: S (M) L (XL) XXL (XXXL)
Garn: Drops Karisma
- Vínrauður nr 48: 400 (400) 450 (500) 550 (600) g
- Natur nr 01: 250 (300) 300 (350) 350 (400) g
Eða Drops Lima
- Rauður nr 3609: 400 (400) 450 (500) 550 (600) g
- Natur nr 0100: 250 (300) 300 (350) 350 (400) g
Prjónfesta: 21 lykkja x 28 umferðir með sléttu prjóni = 10×10 cm.
Prjónar: Sokka- og hringprjónn, 40 og 80 cm nr 3 og 4.
Uppskrift má nálgast frítt hérna og garnið kaupir þú hérna: Drops Karisma / Drops Lima eða heimsækir okkur í verslunina.