Prjónaðu þína eigin peysu – námskeið
Langar þig að verða öruggari í peysuprjóni og læra að lesa prjónauppskrift?
Á námskeiðinu velur hver þátttakandi eina af fjórum uppskriftum og prjónar sína peysu með leiðsögn. Námskeiðið hentar þeim sem kunna að prjóna slétt og brugðið en vilja öðlast meira öryggi í að lesa uppskrift og prjóna peysu.
Við förum meðal annars yfir prjónfestu og stærðarval, hvernig uppskriftin er lesin og þau mismunandi skref sem koma upp við prjón peysunnar. Kennslan miðast við verkefni hvers og eins.
Hægt er að velja um:
Uppskrift er ekki innifalin og þarf hver þátttakandi að kaupa þá uppskrift sem hann velur.
Námskeiðið er fjögur kvöld. Vika er á milli fyrstu tveggja tímanna og síðan tvær vikur á milli tíma svo þátttakendur hafi góðan tíma til að komast áfram með verkefnið á milli skipta.
Dagsetningar:
- 28. október
- 4. nóvember
- 18. nóvember
- 2. desember
Tími:
- Klukkan 18:30-21:00
Hafa með:
- Garn og prjóna sem hentar í þá peysu sem þú velur. Einnig hægt að kaupa garn og prjóna á staðnum með 20% afslætti.
Kennari:
- Kristín
Staðsetning:
- Námskeiðið er haldið í versluninni Handverkskúnst Hraunbæ 102A, 110 Reykjavík.
Annað:
- Við mælum með að koma í Handverkskúnst áður en námskeiðið hefst til að velja garn og fá aðstoð við garnmagn.
- Þátttakendur fá 20% afslátt af garni og fylgihlutum í Handverkskúnst á meðan námskeiðinu stendur.
Verð 23.000 kr. Greiða þarf námskeiðsgjald við skráningu. Námskeið er ekki endurgreitt nema forföll séu tilkynnt með skilaboðum í síma 888-6611 með minnst 3ja tíma fyrirvara. Ef ekki næst lágmarksþátttaka og námskeið fellur niður er námskeiðisgjaldið endurgreitt að fullu.
**Athugið að mörg stéttarfélög styrkja félaga sína á námskeið**
