Stjarna dömupeysa
Peysan er prjónuð neðan frá og upp. Bolur og ermar sameinað á hringprjón, laskaúrtaka á berustykki
Stærðir: S (M) L (XL)
Yfirvídd ca: 96 (106) 123 (132) cm
Ermalengd ca: 43 (44) 44 (44) cm
Heildarlengd ca: 50 (53) 55 (57) cm
Garn: Drops Air
- Litur 1: 4 (4) 5 (6) g litur á mynd natur nr 01
- Litur 2: 1 (2) 2 (2) g litur á mynd koksgrár nr 06
Prjónar: Sokkaprjónar nr 4, hringprjónn 40 og 60-80 cm nr 4 og 5 eða sú prjónastærð sem þarf til að fá 17L x 22 umf = 10×10 cm.
Ég hef svo oft í gegnum árin verið beðin um uppskrift af þessari færeysku stjörnupeysu. Peysan hefur verið gífurlega vinsæl í Færeyjum og víðar. Peysan gegnur stundum undir nafninu ”Sara Lund peysan” og kom fram í dönsku þáttunum The killing. Hér kemur mín útgáfa af þessari skemmtilegu peysu.