Ég ákvað með stuttum fyrirvara að vera með á Jólahandverksmarkaði sem haldinn var í dag á Sjóminjasafninu í Reykjavík, Víkin. Ég var eins og lítið barn innan um alla dásemdina sem þarna var í boði og dansaði um salinn. Það var svo gaman að sjá og skoða þegar allir voru að stilla upp vörum sínum upp og gera sig tilbúna fyrir daginn. Við eigum svakalega margt hæfileikaríkt fólk og þegar kemur að handverki er ekkert gefið eftir, úrvalið er gífurlegt. Ég fékk leyfi frá öllum að mynda borðin þeirra og birta hér á blogginu mínu.
Guðrúnardætur
Við mæðgur vorum saman Guðrúnardætur og Handverkskúnst. Guðmunda saumar út krossasaumsmyndir í mörgum útfærslum og útbýr: lyklakippur, bókamerki, nælur, hálsmen, myndir, eyrnalokka og ermahnappa. Afskaplega fallegt hjá henni.
Álfaskór
Alltaf gaman að skoða álfaskóna. Mikið úrval í öllum stærðum.
Álfaskór í öllum stærðum og mörgum litum
Handverk og hönnun – astast
Eyfirskt handverk og hönnun þar sem áhersla er lögð á gæði og góðann frágang. Margskonar vörur til sölu m.a. barnafatnaður og ullarvara. Kertin hennar eru virkilega falleg og svo þóttu mér hálstau fyrir kisur algjör snilld.
Hálstau fyrir ketti, hvaða köttur væri ekki glæsilegur með svona um hálsinn?
Falleg kerti skreytt með kirkjum
Nína Fína Textil
Skemmtilegar húfur í öllum litum og flottir verndarenglar, mjög skemmtileg hugmynd
Hárskraut *LíLa-Líríó*
Skemmtileg hugmynd og hárböndin hennar falleg, sá þarna í fyrsta skipti hárbönd með uglum og voru þau æði.
EMM handverk, vinnustofa
Flottir skartgripir: Hálsmen, nælur, eyrnalokkar, armbönd, prjónamerki og fleira.
Prjón íslenskt
Kolbrún er með prjónavörur t.d. húfusett, vettlinga, inniskó, peysur, sjöl og trefla. Fallegar vörur hjá henni.
Sigga S. Glerkúnst
Glerhandverk; Klukkur, Matarstell, Lampar, Skartgripir, Kertaljós, Skálar og Aðventukransar eru dæmi um það sem ég hef til sölu. Einnig hef ég verið að búa til og hanna hluti eftir tilefnum og óskum viðskiptavina. Virkilega flottar vörur hjá henni og aðventukransarnir ofboðslega fallegir.
Handverkið mitt
Vörur unnar úr rekavið. Ásta er snillingur og vörurnar hennar skemmtilegar
Frida design
Hólmfríður hannar fallegar þæfðar vörur úr íslenskri ull.
KúMen
Skart og nytjahlutir úr horni og beinum.
Flottar vörur hjá Þórdísi Höllu í KúMen
Handverk Ebbu
Mikið úrval hjá henni, tréhálsmen, orkeraðir skartgripir, leðurarmbönd.
Gallerý Ársól
Hún var með mikið úrval af leðurveskjum og silfurskarti
H&E Design
Þau Hulda Birna og Einar eru með frábært úrval af slaufum, ekki eingöngu hefðbundnar heldur líka litríkar og skreyttar hinum ýmsu teiknimyndum og fleira. Íslensk hönnun, íslenskt handverk, frábærar gjafir – tel þær hitta í mark hjá öllum.
Gífurlegt úrval og allir ættu að finna eina við sitt hæfi
Icewool
Tískuvörur unnar úr íslenskri ull
Gagga handver og hönnun
Ýmis útsaumur, textar, hvítsaumur,myndir og fleira. Falleg sængurföt fyrir börn með áletrun og svo getur þú komið sjálf með sængurföt og látið merkja eða setja fallegan texta eftir þínu höfði. Flottar jóladúllur, hárspennur með fiðrildum, púðar með vísum og margt fleira.
Blúndugler
Magga í Blúndugler er með frábærar vörur. Glervörur sem hún skreytir merð dúkum frá móður sinni og ömmu til að mynda munstur á gler. Þú getur komið með prjónaðan eða heklaðan dúk sem þú átt og Magga skreytir kökudisk, skál eða fat með honum. Dúkurinn eyðileggst ekki heldur notar þú hann áfram en átt líka t.d. fallegan kökudisk með honum. Algjör snilld hjá Möggu.
Handverkskúnst
Má ekki gleyma sjálfri mér. Ég var með slatta af prjónavörum sem ég hef prjónað á þessu ári. Sá það að útprjónaðir vettlingar á fullorðna er eitthvað sem rýkur út. Ég var þarna meira til gaman og sé ekki eftir því, skoða það alvarlega að vera með aftur á næsta ári.
Vettlingar, sokkar, sjöl og uppskriftir
Í lokin á kaffihúsinu þarna var þessi fallegi stóll. Veit því miður ekki nafnið á listakonunni sem prjónaði utan um hann en varð að mynda hann.
Kveð í bili, virkilega gaman að vera með á jólamarkaðnum og mæli með að þú kíkir hafir þú ekki farið áður á svona markaði.
Kveðja
Guðrún María