Um helgina ætlum við systur að taka þátt í Handverksmarkaði á Menningarnótt. Þetta verður annað árið í röð sem við gerum þetta.
Í ár verður markaðurinn á Káratorgi, sem er á milli Kaffismiðjunnar Kárastíg og Drekans Njálsgötu. Markaðurinn er Laugardaginn 18. ágúst frá 12-16.
Ég er búin að vera að hekla utan um nokkrar barnamatskrukkur til að selja á markaðnum. Er ekkert smá ánægð með þessa litagleði hjá mér og missti mig aðeins í að taka myndir af krukkunum…svona aldrei þessu vant c”,)
Þessar krukkur eru allar til sölu og kosta 1000 krónur stykkið.
Bleik og Beis litablanda
Fánalitirnir
Pastel litir
Allar krukkurnar í litaröð
Er alveg ástfangin af þeim
Er alveg ástfangin af þeim
Guðmunda mín var auðvitað á staðnum.
Mér finnst krukkurnar mínar svo fínar að ég verð ekkert svo sár ef þær seljast ekki. Þá get ég bara átt þær sjálf!