Tvöfalt prjón 27. október á Akureyri
Tvöfalt prjón (Double knitting)er mjög skemmtileg prjónaaðferð sem skilar okkur frábærum kósý, tvöföldum flíkum sem nota má á bæði réttu og röngu, það er flíkin er viðsnúanleg.
Þegar þú hefur einu sinni prófað að prjóna með þessari aðferð er ekki aftur snúið, þú verður alveg háð/ur þessari tækni. Þetta er frábær leið til þess að prjóna t.d. trefla, húfur, sokka,vettlinga, peysur. Þetta námskeið er ætlað fyrir þá sem hafa grunnþekkingu á prjóni. Örvhentir sem og rétthentir velkomnir.
Námskeiðið er haldið mánudaginn 27. október kl. 19:30-22:00
Staðsetning: kemur síðar
Verð: 7.500 kr.
Á námskeiðinu förum við yfir tæknina við tvöfalt prjón, fitjum upp og prjónum prufu.
Námskeiðið er í 2 – 2,5 klst. og fylgir með uppskrift að barnahúfu
Þú þarft að koma með:
- Garn í tveimur litum
- Prjónastærð sem hentar þínu garni (sokkaprjóna eða hringprjón)
- Javanál
Lágmarksfjöldi þátttakenda: 6
Hámarksfjöldi þátttakenda: 12
Verð: kr. 7.500
Fylltu út formið hér að neðan til að skrá þig eða hafðu samband við Guðrúnu,
netfang: gudrun@handverkskunst.is eða í síma: 861-6655,
**Athugið að mörg stéttarfélög styrkja félaga sína á námskeið**
Error: Contact form not found.