Teppahekl – Akureyri
Á þessu námskeiði verða kennd þrjú falleg en einföld hekluð teppamynstur.
Námskeiðið hentar bæði fyrir algera byrjendur í hekli sem
og heklara sem kunna örlítið en langar að læra meira.
Örvhentir og rétthentir velkomnir.
Kennt verður að fara eftir uppskrift bæði í máli og myndum (hekltáknum).
Flestir nemendur munu aðeins hekla eitt mynstur á námskeiðinu sjálfu,
en eftir námskeiðið hafa þeir öðlast færnina til þess að gera hin mynstrin heima.
Námskeiðið er kennt fimmtudaginn 30. október kl. 19:00-21:30
Staðsetning: Kemur síðar
**Garn keypt á staðnum**
Námskeiðið er ca. 2,5 klst og innifalið í námskeiðinu er:
- Uppskriftir í máli og myndum.
- Leiðbeiningahefti um hekl.
Þú þarft að koma með:
- Heklunál nr. 3,5.
(Hægt er að kaupa heklunál á staðnum). - Góða skapið
Verð: 7.500 kr.
Fylltu út formið hér að neðan til að skrá þig eða hafðu samband við Elínu, netfang: elin@handverkskunst.is eða í síma 662-8635
Lágmarksfjöldi þátttakenda: 8
Hámarksfjöldi þátttakenda: 12
**Athugið að mörg stéttarfélög styrkja félaga sína á námskeið**
Error: Contact form not found.