Ullaræði 2

6.890 kr.

Innblástur í hönnun sína sækir hún í frostið, storminn, rigningu og norðurljósin.

Finnski hönnuðurinn Heli Nikula, sem hannar undir nafninu Villahullu, sló í gegn fyrir nokkrum árum með peysuuppskrift úr íslenskum lopa. Í kjölfarið fylgdu fleiri gríðarvinsælar uppskriftir og síðan bók, Villahullu eða Ullaræði, sem hefur notið mikillar hylli hérlendis sem annars staðar.

Hér er loksins komin ný og ekki síður skemmtileg bók sem inniheldur á þriðja tug uppskrifta, flestar að heilum peysum en einnig að sokkum, húfum, vettlingum og fleiri minni verkefnum. Ullaræði 2 er afar litrík og fjölbreytt prjónabók þar sem íslenski lopinn er uppistaðan í uppskriftunum.

Guðrún Hannele Henttinen þýddi.

Aðeins 1 eftir á lager

Vörunúmer: ullaraedi2 Flokkur: