Knitted Wild Animal Friends
Höfundur: Louise Crowther
Tungumál: Enska
Bókin Knitted Animal Friends vakti gífurlega lukku meðal prjónara og nú hefur Louise höfundur bókarinnar gefið út aðra bók sem eru sko engu síðri en sú fyrri. Í bókinni Knitted Wild Animal Friends er að finna 12 prjónuð villt dýr, hvert þeirra með sín einkenni og sinn fatastíl. Öll dýrin hafa í grunninn sömu stærð af búk og því er hægt að nota fötin á fleiri en eitt dýr, fötin úr fyrri bókinni passa líka.. Veldu þitt uppáhaldsdýr og klæðnað á þær. Fullkomin gjöf fyrir vini og vandamenn.
Höfundur bókarinnar mælir með Scheepjes Stone Washed & Scheepjes Catona í dýrin.