Dúlluhekl – byrjendanámskeið
Á þessu námskeiði verður kennt að hekla þessar fallegu en einföldu dúllur sem og hvernig á að hekla þær saman.
Kennt verður að fara eftir uppskrift bæði í máli og myndum (hekltáknum).
Námskeiðið hentar bæði fyrir algera byrjendur í hekli sem og heklara sem kunna örlítið en langar að læra meira.
Örvhentir og rétthentir velkomnir.
Námskeiðið er kennt mánudaginn 3. mars kl. 18:30-21:00
Staðsetning: Garnhornið í A4, Skeifunni 17, 108 rvk.
Námskeiðið er ca. 2,5 klst og innifalið í námskeiðinu er:
- Garn í prufu.
(Hægt er að kaupa meira garn á afslætti í verslun ef nemendur vilja kaupa garn í heilt teppi.). - Uppskrift í máli og myndum.
- Leiðbeiningahefti um hekl.
Þú þarft að koma með:
- Heklunál nr. 3,5.
(Hægt er að kaupa heklunál á staðnum). - Góða skapið
Verð: 6.000 kr.
**Athugið að mörg stéttarfélög styrkja félaga sína á námskeið**
Skráning og nánari upplýsingar fást í tölvupósti handverkskunst@gmail.com eða í síma 662-8635 Elín
Lágmarksfjöldi þátttakenda: 4
Hámarksfjöldi þátttakenda: 8