Hjartagull – samhekl
Við mæðgur kynnum með stolti fyrsta samhekl Handverkskúnstar.
Barnateppið Hjartagull verður verkefnið í þessu samhekli. Hver fer á sínum hraða, ekkert stress og engin keppni. Nú er tækifæri fyrir byrjendur sem og lengra komna að taka þátt og vera með í skemmtilegu heklverkefni.
Uppskrift á íslensku fæst eingöngu hjá Handverkskúnst við kaup á Stone Washed garni í teppið en hægt að kaupa hana beint frá höfundi Cécile Balladino á ensku á Ravelry.
Þeir sem versla garn hjá Handverkskúnst fá aðgang að lokuðum Facebook hóp þar sem við leiðbeinum ykkur eftir þörfum sem og í versluninni.
Skoða Facebook viðburð samheklsins.
Útsölustaðir:
Handverkskúnst, Nýbýlavegi 32, Dalbrekkumegin, 200 Kópavogi.
Saumastofa Íslands, Dugguvogi 2, 104 Reykjavík.
Blómabúðin Draumaland, Tjarnargötu 3, 230 Reykjanesbæ
Verslunin Birkir, Hafnarstræti 6, 400 Ísafirði
Verslunin Hlín, Klapparstíg 2, 530 Hvammstanga.
Húnabúð, Húnabraut 4, 540 Blönduósi.
Snældan, Garðarsbraut 15, 640 Húsavík
Efnalaug Dóru, Hafnarbraut 34b, 780 Höfn í Hornafirði.
Í vefverslun er hægt að kaupa garn í völdum litasamsetningum hér eða skoða litaúrvalið og velja eigin liti hér. Sendum um allt land.